10,5 kíló GONE!

I'm so pretty .. O so pretty!

20.01.2008 14:09:26 / superbarbie

Dagur 161: Tíminn flýguurr!!

Ég er búin að vera mjög busy í prófunum .. haha en ég hef verið að standa mig svona þokkalega .. ekkert til að hrópa húrra fyrir samt. Er mjög mikið búinað vera á hinn síðunni 'nyresolution' og það gengur vel. Held henni alveg uppi. Þið skuluð kíkja! Tickerinn okkar er kominn í 22,4kg þannig að það eru minna en 150kg eftir :D

Ég er eitthvað um 61-62kg ennþá.

Superbarbie

http://www.health.state.nm.us/images/apple.jpg

Þessi eru bara eitruð þau eru svo girnileg!! 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 22:05:45 / superbarbie

Dagur 150: Fer að nálgast hálft ár!

Að hugsa sér að ég er að nálgast hálft ár í átaki! Auðvitað hef ég staðið mig misvel en alltaf haldið áfram, þetta hefur aldrei gerst áður að ég sé í átaki svona lengi en hætti ekki bara!

Ég er líka með fleiri gellum á síðu sem heitir www.blog.central.is/nyresolution/ en ég er auðvitað ekki hætt hérna.

Ég er í smá stressi með peningamálin. Reyndar ekki stressi ég þarf ekkert að borga nema tölvuna mína haha ... :| ég bý ennþá heima, en það er svo margt sem mig vantar. Tölvustóllinn minn er brotinn, mig langar í einhvern þægilegann en ég get svosum keypt mér eitthvað drasl og sett púða í stólinn :$ svo vantar mig dýnu á rúmið mitt, sem kostar slatta býst ég við .. svo er auðvitað alltaf hægt að fá betri sæng. En ég sko held að ég taki músina næst á dagskrá. Ég er með ömurlega mús, ég er stundum í isketch og ég get varla hreyft músina! Ömurlegt með stóru Ö!

Ég veit ekki alveg hvað ég er búin að missa mörg kg samtals núna, það er vigtunardagur á mrg. Ég veit að tickerinn minn og heiti síðunnar metsar ekki en það verður bara að hafa það, ég laga þetta á morgun.

Jæja ég ætla að skella mér í smá hugarleikfimi (stærðfræði)

Heyrumst hress og kát!

SuperBarbie


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 20:22:31 / superbarbie

Dagur 147: Mikið svakalega líður tíminn!

Ég hef ekki við að skrifa, tíminn líður svo svakalega hratt!

Ég þyngdist ekkert mikið um jólin og er því fegin, nú hef ég reyndar verið mikið á flakki og fer bráðlega að hjálpa pabba mínum við flutningar og ég er að byrja aftur í skólanum á morgun þannig að ég veit að það verður mikið um að borða bara FinnCrisp og Corny hrökkbrauð. Ég þarf reyndar að finna Corny með hvítlauksbragði, mér finnst svo gott að narta í það sem snakk þegar mér leiðist ;)

Ég vigtaði mig í morgun sem 60,5kg ég átti nú ekki að vigta mig fyrr en á morgun því þá er komin vika númer tuttugu og eitthvað en þar sem ég hef ekki skráð inn vigtun í soldinn tíma núna þá langaði mér nú að henda einu í ykkur ;)

Ég mun líklega mæla mig á morgun en þó veit ég það ekki, þegar það er skóli þá nenni ég ekki alltaf að standa í því að mæla mig og svo mun ég vera að vinna næsta föstudag og yfir helgina, kannski mun svo koma að ég set ekki inn mælingu fyrr en þarnæstu helgi .. :$

Við verðum bara að sjá hvað setur, ég segi þetta gott í bili. Vonandi gekk ykkur vel í átakinu um jólin og haldið ótrauð áfram og þó svo að þið hafið bætt á ykkur yfir jólin þá þýðir það ekki að allt sé ónýtt, nei hreint ekki!!

Þið bara látið eins og ekkert hafi í skorist og haldið áfram í baráttunni um betri heilsu!

SuperBarbie


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 00:43:03 / superbarbie

Ég er ekki horfin

Ég er ekki horfin bara busy .. segi ekki meira en þetta í bili .. geri blogg seinna vildi bara láta vita af mér!

SuperBarbie


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 15:22:28 / superbarbie

Dagur 132: Búin að ná aðalmarkmiðinu mínu!

Jæja, ég var 59,8kg í morgun :) ég er semsagt búin að ná markmiðinu mínu! en sko aðalmarkmiðið var 57 kg en ég veit samt ekki ég ætla að reyna að ná mér niður í 59kg fyrst og sjá svo bara til.. ég er samt fúl út af einu! Ég hélt að ef ég myndi ná mér niður í þessa tölu þá yrði ég ánægð með lærin á mér en ég hef bara misst af mittinu .. maginn er soldið þaninn ennþá en lærin eru mjög svipuð og alltaf .. ég er fúl út af því og það er eina ástæðan fyrir því að ég vil missa aðeins meira ég vil vera ánægð með lærin mín og ég vil ekki hafa svona appelsínuhúð eða svona krumplur .. garg

Allavega .. heyrumst

SuperBarbie


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 23:00:47 / superbarbie

Dagur 129: Búin að ná fyrsta markmiðinu mínu! :)

Hellú!

Ég vildi bara blogga til að segja ykkur að ég hef náð fyrsta markmiðinu mínu! Ég vigtaði mig í morgun og ég var 61kg og svo stalst ég til að vigta mig áðan og svo furðulega vildi til að ég var 60,6kg þá!!! 8| já þið heyrðuð rétt, ég var þetta mikið um kvöld! Af einum degi! Það var alveg merkilegt jáh ...

En allavega ég var á 'deiti' í kvöld reyndar svona double date, það var gaman það var farið í bíó og myndin var fín :)

Segi ekki meira í bili, vigtun og mælingar í fyrró :)

SuperBarbie


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 22:05:07 / superbarbie

Dagur 126: Weigh in

Ég var 62,3kg í morgun ... gekk vel í mataræðinu í dag og ætla að taka morgundaginn flottan líka, geri þetta stutt því netið gæti dottið út. Takk fyrir að lesa :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 23:13:36 / superbarbie

Dagur 122: Vigtun

Vigtunardagur í dag :) Vigtaði mig í morgun og ég var 62,4kg það er frábært ;) rosalega gaman, hlakka rosalega til að vigta mig næsta mánudag!

Innblástur ársins: Youtube.com - Faintstarlite
Hún er búin að missa 70lbs-31kg hún er frábær, svo jákvæð og æðisleg!

Ég ætla að setja mér markmið fyrir næsta vigtunardag. Plana vikuna mína aðeins hérna:

Ég set inní töfluna helstu atriði vikunnar

Mánud

ÞriðjudMiðvikudFimmtudFöstudLaugardSunnud

-

Læra fyrir nátt. prófNátt.prófLangur dagur til 16VinnaVinnaVinna

-

 Vinna 16-22Ræktin   

-

      

-

      

-

      

-

      
Skólatengt – Appelsínugult
Vinnutengt – Fjólublátt

Hreyfingartengt - Grænt

Mikið rosalega ætla ég að hafa þessa viku flotta!
P.s ef þið eruð í cravings fyrir mat þá skuliði spila Bubble Struggle 2: Rebubbled, þið munuð ekki fara úr herberginu.

  

 

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 20:53:48 / superbarbie

Dagur 121: Mér finnst ég alltaf vera að léttast en hef aldrei vigt til að sjá sannleikann

Sko málið er að alltaf þegar mér finnst ég vera að grennast þá er ég ekki með aðalvigtina sem er mín vigt til að tékka á því. En allavega ég hef ekki verið að standa mig sem best en ég held samt að ég hafi grennst frá því í síðustu viku sem er æði! Svo verður vikan framundan góð, vonandi .. ég er sko að fara í próf á miðvikudaginn en ég er að vinna á þriðjudaginn og næsta föstudag, laugardag og sunnudag sem ég er ekki að nenna! Ég er búin að vinna rosalega mikið undanfarið og varð eiginlega slöpp af þreytu í gær þannig að ég tók veikindadag.

Ég hef semsagt bara morgundaginn til að læra fyrir prófið nema þá líka í kvöld en ég hef eiginlega ekki tíma heldur núna, langaði að horfa á næturvaktina langar líka að fara út að skokka en ég bara veit ekki! Kannski ef ég horfi á næturvaktina, hún er til svona hálf 10, fer svo að skokka í smá tíma kannski korter eða 20 mínútur það er allavega eitthvað ... og fer svo inn að læra .. þá get ég lært í klukkutíma áður en ég fer að sofa það er fínt ;) Svo eftir helgina þá verð ég sko í fríi í smá tíma, nema á föstudögum þannig að eftir helgina þá eru bara nokkrir dagar í jólafrí ég fer í jólafrí held ég 20.des þannig að það er bara á fimmtudaginn í næstu viku semsagt ekki núna heldur næst :) Gvöð hvað ég hlakka til! En ég ætla að reyna að bæta mataræðið hjá mér, en ástæðan fyrir því að mér finnst ég vera að grennast er sú að ég er byrjuð að nota small í bolum semsagt flestum bolum .. var að breyta um númer í vinnunni því að hann var svo stór bolurinn sem ég var í sem var í medium. Svo já bara vonandi :) *fingerscrossed*

Segi ekki meira í bili þó þetta hafi verið MJÖG mikið algjör ritgerð! :) :^)

SuperBarbie


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 20:19:10 / superbarbie

Dagur 118: Hvað er þetta allt eða ekkert hjá mér alltaf hreint?

Ég hef komist að einu um sjálfa mig, ég hugsa alltaf einhvernveginn ómeðvitað .. allt eða ekkert, ég geri þetta í alvöru! Ég get komið með dæmi t.d. að ef ég plana að fara í ræktina þá er ég alltaf að hugsa okey ég fer á hverjum degi eða 5x í viku .. svo gefst ég upp á því og fer ekkert í staðinn fyrir að plana bara að fara svona 2svar í viku eða eh. svo líka með mataræðið þá geri ég þannig að ég borða EKKERT óhollt eða bara ávexti eða eh.svoleiðis og þá fell ég í því í staðinn fyrir að gera þetta rétt! Hreyfa mig, borða hollt og drekka vatn! Þetta er svo ótrúlega einfalt svo að ég skil bara ekki hvers vegna ég get þetta ekki! Ég ÆTLA að verða 61kg ég bara ÆTLA!!!! Jæja þetta er allt í bili ... heyrumst SuperBarbie

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 19:19:48 / superbarbie

Dagur 111: Er búin að breyta næsta markmiði

Allt í lagi, nú er ég búin að breyta næsta markmiði í 61kg vegna þess að ég held að ég þrauki ekki lengra en það þannig að núna lítur staðallinn svona út:

Ég ætla að vera búin að ná markmiðinu mínu fyrir jól! Það eru meira en 3 vikur í það! Ég ætti að vera búin að ná af mér meira að segja 2 kílóum þá vonandi. Ég verð bara að muna að standa mig!

Matseðillinn í dag var heldur ekki neitt til að hrópa húrra fyrir því miður!

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Morgunmatur: Honey nut serios

Morgunkaffi: Pitsahorn (grillað ostarúnstykki m/pitsasósu, osti & pepperóní;) svo át ég dagmál(sykurskerta) svona eins og skyr + capri sonne.


Hádegismatur: Soðinn fiskur + kartöflur stappað saman með miklu smjöri og tómatsósu!

Kaffi: 4 smákökur (sykur+smjörlíki beisiklí;)

Kvöldmatur: Spælt egg, gúrkubiti, tómatbiti, 2 skinkisneiðar + 1,5 kartöfluþríhyrningar (eitthvað sem líkist kartöflum en soldið eins og hrísgrjón inní, held þetta sé meira að segja djúpsteikt, ekkert hollt allavega!)

Annað: 1 biti toblerone
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Dagurinn á morgun mun vera betri! Erum að selja kökur í skólanum í fyrramálið en vinkonu mín ætlaði að kaupa karamelluköku í bakaríinu því það er ódýrara í fyrramálið fyrir mig og sig en ég sendi henni sms áðan um að sleppa því :haha:
Ég ætla að ná þessu markmiði mínu!

Bendito! (náði ég þessu rétt)?
SuperBarbie


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 22:48:32 / superbarbie

Dagur 110: Afsakið hvað seinasta blogg var langt + syndir

Komiði sæl! Ég verð að afsaka hvað seinasta blogg var gríðarlega langt ég hafði bara svo mikið að segja að mér leið eins og ég væri bara að tala.

Ég fór í keilu með bekknum í dag, við tókum 2 leiki, það var æði! Ég vann annan leikinn með 111stig! :haha:
Syndirnar mínar í dag eru þær að ég fékk mér kókosstykki sem innihélt sirka 130kkal, svo fékk ég mér smartís-ís sem innihélt 135kkal, kannski 15 franskar og 2 bita af NIZZA með rúsínum. :^) Jahá svona var það nú! Engin rækt heldur í dag, ég ætla að fara á morgun og vera nú extra dugleg, það er heimilisfræði hjá mér á morgun og við munum elda fisk þannig að það verður ekkert óhollt sull á morgun, þið getið bókað það! En svo fer ég þegar ég er búin, ég er búin um 4 leytið þá hleyp ég niður í ræktina og reyni að vera þar í 1-1,5 klst og tek það alveg á fullu! ALLT Í BOTN! Ég semsagt er ekkert búin að fara í ræktina í þessari viku nema að ef ég tel föstudaginn sem byrjun vikunnar eins og ég mun gera þá er ég búin að fara 2svar í vikunni. Ég fór semsagt á seinasta föst, svo laug, en ekkert svo nema núna :( Ég verð að vera dugleg, og ég stóð heldur ekki við það að hreyfa mig samt.

En á ég að segja ykkur soldið? (okey þetta er að verða soldið langt blogg líka en ok) amma mín bauð mér 10þúsund krónur fyrir að hætta að lita á mér hárið, hafa minn lit og setja bara strípur, ég má samt hafa skol á meðan dökki liturinn vex úr svo ég líti ekki út eins og sebrahestur! Vinkona mín sagði að ef ég gerði þetta þá bætti hún 500kalli við í púkkið! :haha:

Jæja þessum endalausu skriftum mínum lýkur núna! Eigiði góða viku!

SuperBarbie!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 18:09:05 / superbarbie

Dagur 109: Fínn dagur, vigtun á næsta föstudag

Sælt veri fólkið!Ég hef ákveðið að hafa næstu vigtun á föstudeginum, ég er að vinna um helgina og er soldið hrædd um að ég muni missa mig þá og það er betra að hafa vigtanirnar fyrir helgi svo að ég hafi þá allavega afgang vikunnar til að ná því af mér ef ég skyldi missa mig. Svo finnst mér líka óþægilegt að hafa vigtunardag á mánudegi, það er eftir helgi og helgarnar eru svo langar en föstudagarnir eru alltaf komnir strax aftur!

En dagurinn í dag var sérstakur, ég fór í skólann í morgun og það var fínt, svo í stuttan leikfimi tíma 13:50 en það var vegna þess að við fengum smá tíma til að 'gera okkur til' af því að við vorum að fara að hitta forsetann og formann Ferðafélag Íslands klukkan að verða 15.
Ég skal skýra þetta aðeins út fyrir ykkur, ég er semsagt í 10.bekk í Smáraskóla og við höfum það sem venju að við förum í ferðir, unglingastigs ferðirnar eru eftirfarandi:
8.bekkur - laugarvegsgangan (ekki búðarlaugarvegurinn heldur svona fjallgönguvegur)
9.bekkur - hjólaferð
10.bekkur - hjólaferð .. ég er í 10.bekk og frá Ferðafélagi Íslands fengum við krakkarnir í 10.bekkjar árganginum undirlag, sem eru eins og flíspeysur sem eru svona sléttar að utan, semsagt fengum þannig frá Cintamani frá FÍ (Ferðafélag Íslands) og þær kosta 8 þúsund kall stk! fyrir allan árganginn er það 320 þúsund krónur! Hugsið ykkur!

Svo fékk skólinn eða unglingastigið talstöð og GPS tæki frá sony eða einhverju man ekki alveg, og FjallaStína (Kristín Einarsdóttir) sem er yfir ferðunum við köllum hana FjallaStínu hún tók við þessu. En við sátum svo þarna krakkarnir og dóum úr leiðindum að hlusta á forsetann og fleiri gaura, þetta var pain! Ég GAT EKKI HALDIÐ AUGUNUM OPNUM!
Það voru fleiri sem eiginlega sofnuðu en mjög svona 'fínlega' því að þetta er náttlega formleg hátíð vegna þess að FÍ á 80 ára afmæli í dag. Við erum semsagt formlega meðlimir í ferðaklúbbnum eða eitthvað sem tengist þessu.

Þetta röfl er búið í dag, matseðillinn minn hérna að neðan f/ daginn í dag:
Matseðill þriðjudags:
Morgunmatur: Honeynut serios+smá cocopopps (I know)
Morgunkaffi: ABT-mjólk+caprisonny+1/2 grillað brauð með osti,skinku,pepperoní & pitsasósu
Hádegi: Hrísgrjón+soyasósa+nokkrar kjötbollur+minigulrætur
'Kaffi'(kl.18): Hrökkbrauð með rifsberjasultu+osti

Já ég veit þetta er ekki besti matseðill í heimi en hann er heldur ekki sá versti, haha :) Fór reyndar heldur ekki í ræktina í dag eða neitt en það er allt í lagi þá er þetta bara lame dagur. :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 22:02:44 / superbarbie

Dagur 108: KVÖLDBLOGG

Langaði bara að sýna ykkur soldið :) Þetta er eitthvað sem mér fannst rosalega sniðugt, er að fara að læra þessa bók og fann síðu sem er svona líka sniðug!

http://www.nams.is/efnisheimurinn/index.htm

Myndbönd -> 1 Kafli -> Mjólk og borðedik -> open

Rosalega gott myndband, er ekki búin að horfa á hin ennþá. Svo myndi einhver bara nota svo það sem kemur í sýjuna en henda hinu sem er fita og kolvetni haha

SuperBarbie hope's you enjoy


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 07:28:08 / superbarbie

Dagur 108: Vigtun + mælingar

Kl. Í morgun
Hæhæ!

Var að vigta mig og ég mun setja inn mælingar líka.

 

Markmiðið á þessu er semsagt 60 kílóin!

Kl: 16.30
Vitið þið afhverju ég get ekki haft upptalingu á þessu útliti? Þetta er fullscreen útlitið eitthvað þannig, annars tel ég bara dagana :$
Annars var dagurinn í dag fínn, fékk mér reyndar ostaslaufu í staðinn fyrir ávöxt í nestinu :^) en það var allt í lagi .. svo var einhver kjötsúpa í hádeginu sem var nú ekkert spes .. 8|
Fór smástund í ræktina, gat bara verið stutt því að ég vildi nú fá far hjá mömmu heim, nennti ekki að taka strætó. Ég var í 25 mínútur á hlaupabrettinu, mest bara að labba .. ég þurfti svo mikið að pissa að ég gat ekki hlaupið og ég vildi svo mikið horfa að ég gat ekki farið að pissa. Labbði 2,5km og brenndi eitthvað um 130kkal .. ekki mikið en það er samt eitthvað ;) ég er líka frekar busy í dag.

Vonandi heyrumst við hress/ar og kát/ar næst :haha:

COMMENT TAKK! Það eru svo margir búnir að kíkja á síðuna mína en samt fáir að commenta, þank jú!

SuperBarbie

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
�?að eru .. dagar síðan ég byrjaði í átakinu :)
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734529 dögum
RSS tengill